Um Japan
Japan heitir á japönsku Nippon eða Nihon, bæði heitin eru skrifuð eins á japönsku ritmáli. Japanska nafnið Nippon er fyrir formlega notkun, s.s. á gjaldmiðli, frímerkjum og alþjóðlegum íþróttamótum. Nihon er hversdagslegt heiti Japans sem Japanar nota. Sem dæmi, Japanar kalla sig Nihonjin og tungumál sitt Nihongo: sem bókstaflega þýðir „japanskt fólk“ og „japönsk tunga“. Í Japan nú til dags, hefur nafnið Nippon meiri þjóðernissinnaða merkingu, notað meira af eldra fólki, meðan að Nihon er notað dagsdaglega af mestum hluta þjóðarinnar.
Heiti Japans á evrópskum tungumálum (þar með talið íslensku) barst með verslunarleiðum til vesturs. Nafn Japans kom fyrst fyrir í skjölum frá Marco Polo sem Cipangu úr mandarín. Hins vegar er Japan á kantónsku Jatbun, og þaðan er vestræna heitið líklegast komið. Á malajísku varð kantónska heitið Japang og hafa portúgalskir kaupmenn rekist á það í Malakka á 16. öld. Talið er að portúgalskir kaupmenn hafi borið nafnið til Evrópu. Það var fyrst skráð á ensku sem Giapan.
Nihonkoku (日本国), er formlegt heiti Japans og þýðir í raun „japanska ríkið“.
Japan er stórt eyríki sem teygir sig eftir hluta af Kyrrahafsströnd Asíu. Stærstu eyjarnar heita Hokkaidō, Honshū (stærst og fjölmennust), Shikoku, og Kyūshū. Ryukyu eyjaklasinn teygir sig yfir 1000 km til suðvesturs frá Kyūshū alla leið til Tævan. Að auki eru um 3000 smærri eyjar sem tilheyra Japan. 73% landsins telst sem fjalllendi, fjallgarðar liggja eftir eyjunum endilöngum, venjulega frá norðri til suðurs. Hæsta fjallið er Fuji fjall sem er 3776 metra hátt og er virkt eldfjall. Hið takmarkaða flatlendi er mjög þéttbýlt, Tókíó og nágrannaborgir mynda þannig langstærsta samfellda þéttbýlissvæði á jörðinni með yfir 33 milljónir íbúa.
Japan er staðsett á hinum svonefnda eldhring sem umlykur Kyrrahaf og er mjög virkt jarðskjálfta og eldfjalla svæði. Stórir jarðskjálftar geta riðið yfir hvar sem er í Japan og má reikna með nokkrum slíkum á hverri öld. Á 20. öldinni urðu verstu skjálftarnir annars vegar árið 1923 í nágrenni Tókíó sem kostaði 140.000 mannslíf og svo aftur 1995 við Kobe þar sem yfir 6000 manns létust. Jarðhiti er nokkur í Japan og víða má finna heitar uppsprettur og í kringum þær sumar hafa verið byggð böð og heilsuhæli, ekki ósvipað Bláa lóninu á Íslandi.
Heimild: Upplýsingar fengnar frá Wikipedia-vefnum og allir hlekkir leiða þangað.


