Um 101 Tokyo
Japan á Íslandi-Norðurlöndin í Japan
Sumarið 2009 stendur Norræna húsið fyrir einni viðamestu kynningu á Japan samtímans sem haldin hefur verið í Evrópu hin síðari ár. Dagskráin er fjölbreytt og mjög til hennar vandað. Það er von okkar að dagskráin muni höfða til bæði Íslendinga og hinna fjölmörgu gesta sem heimsækja Reykjavík í sumar.
Alvar Aalto, hinn heimsfrægi finnski arkitekt sem hannaði Norræna húsið, var undir sterkum áhrifum frá japanskri byggingarlist og hönnun. Á sama hátt hafa Alvar Aalto og aðrir norrænir hönnuðir haft mikil áhrif á þróunina í Japan. Þessi gagnkvæmi áhugi og innblástur er kveikjan að Japanshátíð Norræna hússins.
Við viljum vekja athygli á því sem er líkt með japanskri og íslenskri menningu, sem þrátt fyrir landfræðilega fjarlægð eiga margt sameiginlegt. Þessar tvær eldfjallaþjóðir hafa sterka tilfinningu fyrir náttúrunni, en birtan, sköpunargleðin, nándin við víðáttumikil úthöfin, þjóðsögur, náttúruöflin, einfaldleiki, baðsiðir, sem og sveiflur í efnahagslífi gefa ríkuleg tilefni til samanburðar. Við viljum skoða hvernig þjóðirnar tvær hugsa um einangrun og endalausan sjóndeildarhringinn, smæð og víðáttu, hefðir og nýjungar, vinnu og tómstundir og margt fleira.
Við væntum þess að 101 Tokyo muni hrífa áhorfendur á öllum aldri. Jafnframt er það von okkar að dagskráin muni gefa gestum nýtt sjónarhorn á menninguna hér í Norður-Atlantshafinu.
Hjartanlega velkomin- Youkoso!
Max Dager,
forstjóri Norræna hússins.


