Encounter Japan - In the nordic house Reykjavik

Tesiðir og fyrirlestur og kvikmyndasýning

föstudagur 3. júlí, 11.33

Nú fer að líða að lokum 101 Tokyo og ágætt að minna á viðburði næstu viku. Þá verður listasmiðja þar sem gestir fá að spreyta sig í japanskri skrautritun-öll námskeiðspláss eru frátekin en öllum er velkomið að fylgjast með. Á fimmtudag er fyrirlestur um byggingarlist en þá mun Leif Høgfeldt Hansen, arkitekt og prófessor við Arkitektaskólann í Árósum, halda fyrirlestur um áhrif hefðbundinnar japanskrar byggingarlistar á verk Alvars Aalto.

Við minnum sérstaklega á lokahnykk dagskrárinnar:

Föstudag, laugardag og sunnudag 10. til 12. júlí:

Japanskir tesiðir: Kanaka Hatanaka, sérfræðingur í japönskum tesiðum (Ura sengei skólinn) og 11 aðstoðarmenn frá Japan kynna Chado –lífstíl tesins.

 

Sunnudagur 12.júlí

Sunnudagsbíó: Always-Sunset on Third Street.

 

Dagskránni lýkur með þessum viðburðum. Gífurleg ásókn hefur verið á listasmiðjur, tónleika og aðra viðburði þær þrjár vikur sem dagskráin hefur staðið. Norræna húsið er ákaflega stolt af því að geta boðið upp á bæði hágæða sýningu og viðburði. Við erum styrktaraðilum þakklát fyrir veittan stuðning, sem og japönsku þátttakendunum sem hafa gefið alla vinnu sína til að gera okkur kleift hafa ókeypis aðgang á alla dagskrárliði.  Við viljum vekja sérstaka athygli á síðasta viðburðinum sem verður sannkölluð veisla fyrir augað - tólf manna kimono-klæddur hópur frá Japan sýnir okkur hvernig teathöfn fer fram á japanska vísu.

 

 

Viðburðadagatal

13.06.09 - 13.07.09
M Þ M Þ F L S
13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13

Styrktaraðilar