Byggt með náttúrunni-ljóðræn verk

25.júní kl 20:00 _ FYRIRLESTUR
BYGGT MEÐ NÁTTÚRUNNI – LJÓÐRÆN VERKEFNI
Arkitektarnir Sami Rintala (FI), Dagur Eggertsson (IS/NO) og Ryo Yomada (JA) kynna eigin verk frá Japan, Finnlandi, Noregi og Íslandi. Þeir gefa einnig innsýn í nýtt verk sem þeir standa sameiginlega að með tilvísunum í japanska og norræna byggingarlistarhefð og baðmenningu Japan, Finnlands og Íslands.
Ein aðalkveikjan að Japan-hátíð Norræna hússins er sá áhugaverði innblástur sem farið hefur ýmist frá Japan til Íslands / Norðurlandanna eða öfugt, m.a. í verkum hins merka finnska arkitekts og hönnuðar Alvar Aalto, í listrænum innsetningum ungra arkitekta þvert á gefin landamæri eða í íslenskri samtímabyggingarlist. Bæði Japan og Ísland eru eldfjallaeyjur og á báðum stöðum hefur sérkennilegt og síbreytilegt landslagið mikil áhrif á form og áherslur í manngerðu umhverfi byggingarlistarinnar, þar sem öguð naumhyggja og náttúruleg efniskennd vega salt hvort með öðru.
ÍBYGGNAR SAMRÆÐUR VIÐ STAÐ
Arkitektastofan RintalaEggertsson er skipuð þeim Sami Rintala og Degi Eggertssyni og staðsett í Noregi, en verk þeirra finnast í Noregi, á Finnlandi og Íslandi auk Japan og víðar um heiminn. Byggingar þeirra einkennast af miklu næmi fyrir sérkennum og eiginleikum hvers staðar og endurspegla andrými jafnframt því að ýta undir íhygli um tengsl manns og náttúru með öguðu formtungumáli sínu. Mörg verka þeirra bera yfirbragð listrænna innsetninga sem spila á form og rými, birtu og skugga í síbreytilegri ásýnd eftir veðri og árstíðum svo sem hin Fljótandi sána í miðjum Harðangursfirði í vestur-Noregi, Skógarskoðunarstöðin í krítar-hvítri steypu inni í þéttum skógi við Kirishima í Japan. (www.rintalaeggertsson.com)
Ryo Yomada er ungur japanskur arkitekt sem rekur eigin teiknistofu í Japan. Hann vinnur með ljóðrænuna í formi, rými og efni á mörkum byggingarlistar og þrívíðrar listsköpunar. Hann vinnur gjarnan út frá mannslíkamanum og snertingar hans við manngert umhverfi, en er einnig umhugað um ímyndir og menningu íbúa og staða svo sem í áningarstaðnum Echigo Tsumari í Nagasoto, Japan eða í verkinu Lárétt landslag sem sett var upp á lóð listasafnsins í Sapporo. Ryo hefur einnig unnið í Noregi þar sem hann þróaði m.a. neyðarskýlið Land snjávar og vinds og líkist helst snjóhúsi úr pappír. (www.ryo-yamada.com)


