Kvikmyndir á sunnudögum

Við sýnum verðlaunamyndir frá Japan á sunnudögum. Þetta eru perlur japanskrar kvikmyndasögu og hafa allar hlotið annað hvort verðlaun eða tilnefningar á helstu kvikmyndahátíðum heimsins.
28.júní kl. 16-18: The Burmese Harp e. Kon Ichikawa frá árinu 1956. Myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna 1957 sem besta erlenda kvikmyndin. Þetta er ein þekktasta mynd Ichikawa og fjallar hún um hóp þreyttra hermanna á leið heim eftir seinni heimstyrjöldina. Hér er hægt að lesa sér til um myndina
5.júlí kl. 16-18: Kikijuiro e. Takeshi Kitano. Myndin er gerð 1999 og hlaut hún tilnefningu til Gullpálmans á Cannes 1999. Þessi mynd fjallar um leit ungs stráks að móður sinni í sumarfríinu sínu. Myndinni er skipt upp í litla kafla sem gegna hlutverki dagbókarfærslna. Innblásturinn fyrir eina aðalpersónu myndarinnar fékk Kitano frá föður sínum sem stundaði fjárhættuspil og hafði mikið fyrir því að framfleyta fjölskyldu sinni. Hér er hægt að lesa sér til um myndina.
12.júlí kl. 16-18: Always: Sunset on Third Street e. Takashi Yamazaki. Þessi mynd var valin besta mynd ársins 2006 og er um að ræða endurgerð á klassískri japanskri mynd.
Hér er sýnishorn úr myndinni:


