Fimmtudagsfyrirlestrar um byggingarlist
fimmtudagur 18. júní, 11.07

Fyrirlestrar um byggingarlist eru þrjá fimmtudaga á 101 Tokyo.
25.júní kl. 20-22: Byggt með náttúrunni-ljóðræn verkefni: Arkitektarnir Sami Rintala, Dagur Eggertsson og Ryo Yamada kynna eigin verk, þ. á. m. forvitnilegt verk í vinnslu sem skírskotar til japanskra og norrænna byggingarhefða og baðmenningar.
2.júlí kl. 20-22: Guja Dögg Hauksdóttir, arkitekt og deildarstjóri byggingarlistadeildar Listasafns Reykjavíkur, kynnir japanska og íslenska nútímabyggingarlist með áherslu á staðbundið landslag og menningu.
9.júlí kl. 20-22: Leif Hogfeldt Hansen, heldur fyrirlestur um áhrif hefðbundinnar japanskrar byggingarlistar á verk Alvars Aalto


