Shoebox Tour koma fram í Norræna húsinu 15., 16. og 17. júní.

Shoebox Tour varð til fyrir fjórum árum sem beint andsvar gegn sýningariðnaðinum og tilhneygingum hans til að græða peninga fremur en að gera alvöru sýningar með góðu innihaldi. Markmið þeirra er að sýna nútíma norrænan sirkus fyrir fólk sem venjulega hefur ekki aðgang að slíkum sýningum. Shoebox Tour, sem sýnir ögrandi og listræn verk, gefur sirkuslistamönnunum sjálfum tækifæri til að taka áhættur án allrar pressu um fylla upp í væntingar um dæmigerðar steríótýpur.
Hver túr sameinar ólík atriði svo hver sýning einstök. Íslandstúrinn samanstendur af töframanninum Erik frá Svíþjóð, trapísu listamanninum Mirju frá Finnlandi og jugglaranum Jay frá Ameríku. Elektrónísk hljóðmynd er hluti af verkinu og spiluð af listamönnunum sem notast við óhefðbundin hljóðfæri s.s. tepoka, dagblöð, fötur, reipi, strengi, hringi, húlahringi, japanska blævanga, fjaðrir og jafnvel bolta sem springa.
Jay Gilligan: Er með heimsmet í juggli þar sem tveir eru saman en þá juggluðu þau 16 hlutum. Hann hefur leikið listir sínar fyrir Englandsdrottingu og er prófessor í juggli við Danhögskolan of Dance Neocircus deildina í Stokkhólmi. Hann kemur einnig fram með Cirkus Cirkör og notar skóstær 49.
Mirja Jauhianien: Hefur verið með einkasýningu fyrir forseta Finnlands og Krónprinsessu Svíþjóðar, er með silfurverðlaun frá Krystallpalast Variete Newcomers Show sem og áhorfendaverðlaun, hefur komið fram með Pomp, Duck og Circumstance Germany variety show, skóstærð 37.
Erik Aberg: Kom frá á Nóbelsverðlaunaafhendingunni, Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna og hefur sýnt í yfir 20 löndum, skóstærð 43.
Aukaefni:
Shoebox Tour- www.shoeboxtour.com
Erik Åberg- www.objectepisodes.com
Mirja Jauhiainen- www.jakobinsirkus.com/spark
Jay Gilligan- www.buildingweight.com
Sýningar:
Mánudag 15/6 20.00
Þriðjudag 16/6 21.00
Miðvikudag 17/6 14.00


